15. janúar 2010

Hér í Borgarfirði er alltaf sama blíðan og rólegheitin. Í þessu góða veðri sem hefur verið undanfarið höfum við fengið golffiðringinn óvenju snemma. Undirbúningur er hafinn, búið að fjárfesta í nýjum pútter fyrir Matta og kylfum fyrir Óla (janúarútsölur sko) þar sem Matti braut sinn í fyrrasumar og Óli er orðinn 183 cm á hæð og gat því ekki lengur notað mínar kylfur.

Ritgerðin mjakast áfram. Það hægir á mér að velflestar heimildir eru erlendar…á tímabili var mig farið að dreyma OECD. Þessa dagana er ég með ritgerðina í salti nema ég fái einhverjar hugljómanir, þar sem ég er að vinna rannsókn á reglum Evrópuríkja um siðferði í opinberri stjórnssýslu. Það kom mér á óvart hvað mörg ríki virðast hafa einhvers konar löggjöf um siðferði. Og það er frekar fyndið að fyrst núna skuli slíkar reglur vera að líta dagsins ljós á Íslandi.

Jæja, manni er ekki til setunnar boðið.

A presto

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.