Þá kom veturinn loksins. Ég velti því fyrir mér í nokkrar vikur í haust að kaupa nagladekk undir jeppann, en ákvað að sleppa því þar sem veturinn er ekki nema 2-3 mánuðir hér í Borgarfirði og við förum ekki nema vikulega til Borgarness. Ég ætla rétt að vona að þessi vetur sem mætti 2 mánuðum of seint muni hypja sig á venjulegum tíma en ekki ílengjast fram á vor.
Það hefur eitthvað kvef verið að angra okkur undanfarnar vikur svo við höfum mest megnis haldið okkur heima við. Enda nóg að gera í lærdóm hjá okkur öllum. Það er helst Matti sem þarf minnst að læra heima, svo hann dundar sér við að læra ítölsku og vill núna byrja að læra dönsku. Ég var búin að kaupa Talk Now á dönsku fyrir Valda svo Matti getur bara fengið það lánað og ef ég þekki hann rétt, þá verður hann orðinn nokkuð góður í dönsku áður en hann þarf að byrja að læra hana í skólanum. Hann er eins og svampur á tungumál. Og eiginlega bara hvað sem er. Hann var veikur heima alla síðustu viku svo ég kenndi honum að prjóna. Hann var ca. korter að læra það. Núna er hann að prjóna sér Liverpooltrefil og sagði mér að ég þyrfti aldrei aftur að fara í prjónaklúbb með vinkonum mínum því ég hefði hann heima til að prjóna með
Valdimar hefur verið að taka sig á með heimanámið, það kom í ljós að hann var orðinn langt á eftir með allt. Hann átti það svo iðulega til að “gleyma” töskunni í skólanum þegar hann þurfti að skrifa ritgerðir heima eða slíkt. Núna er hann búinn að setja sér daglegt skipulag og hefur síðustu vikur verið að vinna upp ásamt því að halda vikuáætlun hverrar viku. Væntanlega verður hann búinn að vinna allt upp um helgina. D-vítamíngjöfin er að svínvirka á hann, þreytan á undanhaldi og þunglyndið. Einnig fór ég að láta hann taka B6 og magnesíum. Það er víst eitthvað sem virkar vel á einhverfa og dregur úr einhverfueinkennum einhverra hluta vegna. Afrakstur alls þessa heimanáms hjá honum hefur gert það að verkum að ég hef þurft að rifja upp alls kyns vísdóm sem ég var fyrir löngu búin að gleyma, eins og hvað fornöfn skiptast í marga flokka og hverjir það eru eða staðreyndir um heimsstyrjöldina síðari. Maður getur svo brosað að sumu sem þessir unglingar eru að læra, Valdi og Óli hafa t.d. báðir lært um sjálfstæðisbaráttuna og svo Óli um þorskastríðin. Þetta eru atriði sem ég sjálf var að læra í stjórnskipunarrétti í meistaranáminu haustið 2008.
En þessa dagana er ég algjörlega í skattalöggjöfinni. Kúrsinn sem ég er að klára á fimmtudaginn heitir Samrunar og yfirtökur og fjallar að mestu um skattalega meðferð slíkra gerninga og ritgerðin er um eitt ákvæði skattalaga sem spornar gegn notkun skattaparadísa. Ég hlýt að fá vinnu þegar ég lýk námi, Benjamin Franklin sagði réttilega að það væri bara tvennt í lífinu sem maður gæti verið öruggur um, það væri skatturinn og dauðinn. Þannig að það hlýtur alltaf að vera þörf fyrir skattalögfræðinga. Annars eru þetta seinni tíma áhyggjur. Ég ætla að spila golf í fjóra mánuði í sumar og klára svo MA námið á haustönn.
Well, kominn kvöldmatur og svo seinni hálfleikur Unirea-Liverpool framundan.
A presto