Í gær vöknuðum við öll fyrir níu til að fara á íþróttahátíð í Borgarnesi. Við Óli vorum nú frekar þreytt, ég var andvaka megnið af nóttinni áður einhverra hluta vegna og var því bara búin að sofa ca 3 tíma. Óli var að passa hjá Elsu og sofnaði þar um miðnætti og hún leyfði honum bara að sofa í stað þess að vekja hann um miðja nótt. Hann vaknaði svo sjálfur rúmlega sex og labbaði yfir (hún býr bara í næstu íbúð) og ég var þá ekki búin að sofa lengi og vaknaði auðvitað. Þá sagðist hann vera að fara að bera út Morgunblaðið. Ég hélt í fyrstu að hann væri bara að tala upp úr svefni. En það kom í ljós að hann var að leysa vinkonu sína af því hún var í sumarbústað, honum hafði bara láðst að segja mér frá þessu. Ég steinsofnaði svo áður en hann kom heim aftur, þó eru þetta bara einhver 7-8 hús.
Við vorum mætt í Borgarnes klukkan tíu stundvíslega. Þá var upphitun í sundi að hefjast. Bæði Óli og Valdi voru að keppa í því, Óli í 50 m skrið og 50 m bringu og Valdi í 50 m bringu. Þeir stóðu sig ágætlega og við fórum svo á Quiznos í hádegismat. Við notuðum hádegishléið til að versla og í þetta sinn sáu strákarnir um innkaupin. Þeir ætla að sjá um fjármálin í mars og ef þeim tekst að lækka venjuleg útgjöld um 10 þús krónur þá verður keyptur nýr Play Station leikur. Þetta er svona liður í að auka verðskynið hjá þeim og draga úr suði. Þetta var pínu fyndið í Bónus, þeir völdu Bónusþvottaefni í stað Ariel sem ég kaupi alltaf og reiknuðu út nákvæmt stykkjaverð á handsápunum. Eins skoðuðu þeir vandlega síðasta söludag á skyrinu og keyptu mátulega margar dollur. Svo bað ég um nammi og þeir sögðu bara já án umhugsunar. Ég sagði þeim þá að ég væri nú bara að gabba þá og þeir hefðu fallið á þessu prófi. Svo fórum við í apótekið og Valdi bannaði mér að skoða skartgripina því ég keypti eyrnalokka um daginn sem pössuðu svo ekki við það sem ég ætlaði að nota þá við. Ég fékk þó að kaupa 15 dokkur af garni í Samkaupum, en við erum ekki búin að ákveða hvort það falli undir flokkinn tómstundir eða fatnað. Ég prjóna jú flíkur úr þessu.
Eftir þetta fórum við aftur í íþróttamiðstöðina þar sem frjálsíþróttakeppnin átti að hefjast 13.30. Þar var Matti að keppa í 20 m spretthlaupi og langstökki án atrennu. Það gekk ágætlega og um þrjúleytið fórum við af stað heim með þrjá verðlaunapeninga hvern um sinn hálsinn. Þá hafði snjóað nokkuð duglega svo við vorum fegin að komast heim í hús. Ég undirbjó þá grillmatinn fyrir kvöldið (við erum alltaf svo bjartsýn sko) og síðan fórum við út að leika okkur í snjónum. Þegar allir voru orðnir kaldir og hraktir og þessi fíni snjókall hafði litið dagsins ljós, þá var gott að koma inn og fá sér Swiss Miss og horfa á vetrarólympíuleikana.
Ég grillaði síðan nautakjöt á teini með tilheyrandi meðlæti og við lögðumst í sófann pakksödd til að horfa á Spaugstofuna. Yfir Gettu Betur vorum við búin að koma okkur aftur fyrir við eldhúsborðið og spiluðum fánaspilið. Óli vann með yfirburðum og gerði þar útslagið þekking hans á einhverjum fyrrverandi Sovétríkjum hverra nöfn enda í dag á -stan. Við hinum vorum öll á sama róli. Við enduðum kvöldið svo yfir bíómyndum.
Í morgun vaknaði Matti fyrstur um tíuleytið. Kvefið virðist vera að taka sig upp aftur svo ég bannaði honum að fara út. Í staðinn bökuðum við Ólaköku þar sem Óli steinsvaf enn. Hann kom sér þó framúr fyrir eitt. Síðan eru allir búnir að vera í afslöppun, tölvuleikjum og öðru dundi og verður væntanlega engin breyting það sem eftir lifir dags
A presto
