28. ágúst 2010

Jæja, það er kannski kominn tími til að lífga aðeins upp á þessa síðu. Lífið frá síðustu færslu hefur verið frekar fábrotið og einkennst af ritgerðarvinnunni. Ritgerðin kláraðist þó um síðir og málsvörn er einnig lokið. Daginn eftir að hafa skilað ritgerðinni inn þá hentum við öllu útilegudótinu okkar í jeppann og fórum hringinn í kringum landið með viðkomu í Vestmannaeyjum. Það var mjög gaman og sérstaklega skemmtilegt hvað við vorum orðin góð í að koma okkur fyrir. Við vorum aldrei fleiri en eina nótt á hverju tjaldsvæði fyrir sig og besti tíminn sem við náðum var um 15 mínútur að henda upp 4. herbergja tjaldi, blása upp vindsængur og koma öllu dótinu fyrir ásamt því að setja upp borð og stóla. Að pakka saman tók venjulega um 30 mínútur og þar af fór um helmingur tímans í að raða dótinu í bílinn. Allt byggðist þetta að sjálfsögðu á samvinnu og verkaskiptingu.

Eftir hringferðina fór Valdi í ferðalag til Akureyrar og Óli dinglaði sér á Selfossi í smátíma. Við Matti slöppuðum bara af heima og ég undirbjó mig fyrir málsvörnina. Núna er skólastarfið allt að fara á fullt og því fer lífið að færast í fastar skorður.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.