28. september 2010

Ég ákvað að læra á strætókerfið í dag. Það er allt að koma en ég hef ekki enn fundið bækling eða pésa með korti af þessu, það er dáldið þreytandi að þurfa alltaf að treysta á kortin í strætóskýlunum og svo minnið.

Um hádegi var ég orðin svo svöng að ég hoppaði enn eina ferðina inn á McDonalds og fékk mér ostborgara og kók. Svo tók við að finna strætó heim. Ég labbaði helling, tók svo 3 strætóa og endaði heima. Þá var klukkan orðin eitt og ég var eitthvað svo þreytt að ég lagðist bara upp í rúm og svaf í nokkra klukkutíma. Svo var ég aðeins að glugga í bækurnar góðu, ein um Bratislava og hin með frösunum. Um sexleytið ákvað ég að koma mér aftur niður í bæ og fá mér kvöldmat. Á leiðinni yfir á strætóstöð fékk ég 3 sms frá Matta, hvert öðru krúttlegra. Fyrst var hann eitthvað að kvarta yfir því að amma hans vildi setja hann í bað, næsta var leiðrétting á einhverju úr því fyrsta og svo kom það þriðja: Love you. Þetta barn hefur fengið einhver úberstökkbreytt tilfinngingagreindargen J

Ég tók leið 61 eins og venjulega og fór úr rétt fyrir Trnavské Mýto og hoppaði yfir í leið 39 sem ég vissi að færi í gegnum miðbæinn. Ég hefði nú ekki gert það ef ég hefði vitað að hann brunaði bara í gegn en stoppaði hvergi. Hann stoppaði loks þegar ég var komin vel vestur fyrir kastalann. Þannig að ég þurfti að gjöra svo vel að labba um 1,5 km til baka áður en ég var komin í miðbæinn. Þá rölti ég nokkra hringi áður en ég ákvað að setjast inn á veitingastað sem virtist nokkuð þétt setinn…eitthvað sem ég túlka sem merki um góðan mat.

Þar talaði afgreiðslukonan þýsku, Guði sé lof. Ég pantaði mér Carpaccio í forrétt og andabringu í aðalrétt. Ég veit ekki alveg hvort þetta var andabringa. Þetta var meira eins og rjúpa á bragðið. Með henni fékk ég einhverja skrýtna kartöflupönnuköku, rauðkál og eina appelsínusneið. Spes. Eftir þetta tók ég smá rölt og settist inn á internet cafe sem var það skemmtilegasta sem ég hef séð í þessari ferð. Þetta var lítið kaffihús/bar sem var með eina borðtölvu útí horni. Þarna mátti greinilega reykja inni, borðin voru 5 talsins og á næsta borði við mig var gamall maður sem drakk kaffi og reykti ásamt því sem hann skoðaði sms-in á símanum sínum sem virtist vera i-Phone.  Tónlistin var bara jazz. Mér leið eins og listamanni. Ég tók þetta skrefinu lengra núna og talaði bara slóvakísku við afgreiðslustelpuna. Fyrir rest tók ég bara leigubíl heim, ég nennti ekki meiri strætó.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.